Leikjum í 8 manna úrslitum skal ljúka eigi síðar en 9. ágúst. Dregið verður í 4 manna úrslit þann 10. ágúst og í framhaldinu verður tilkynnt hvenær þeim leikjum skal lokið fyrir úrslitaleik.
Mótanefnd vill jafnframt minna á að auglýst tímamörk eru bindandi. Mikilvægt er að leikjum sé lokið innan tilgreinds frests svo tryggja megi jafnræði keppenda og eðlilegt framhald keppninnar.
Þegar leikjum er lokið eru keppendur beðnir um að senda úrslit á mótanefnd svo hægt sé að skrá þau og uppfæra stöðu keppninnar.
Við biðjum keppendur því að hafa samband sín á milli tímanlega og finna hentugan leiktíma innan þess frests sem gefinn er.
Gangi ykkur vel í næstu umferð.
Kær kveðja,
Mótanefnd GVS