Upplýsingar
Opna World Classmótið fer fram á Kálfatjarnarvelli laugardaginn 28.september n.k.
Leikinn verður 9 holu punktakeppni með forgjöf og veitt verða verðlaun fyrir fimm efstu sætin. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor.
Þátttökugjald er 2.500kr. fyrir fyrstu 9 og einnig má spila aðrar 9 holur og eru þær á 1.500 kr. betri 9 holurna gilda.
Ræst verður út til klukkan 14.00. Skráning fer fram á golf.is eða á golfskali@simnet.is.
1. Verðlaun í punktakeppni með forgjöf: Árskort í World Class að andvirði kr. 76.910.
2. Verðlaun í punktakeppni með forgjöf: 3 mánaðarkort í World Class að andvirði kr. 29.990.
3. Verðlaun í punktakeppni með forgjöf: 3 mánaðarkort í World Class að andvirði kr. 29.990.
4. Verðlaun í punktakeppni með forgjöf: 15 skiptakort í World Class að andvirði kr. 16.250.
5. Verðlaun í punktakeppni með forgjöf: 15 skiptakort í World Class að andvirði kr. 16.250.
1. Verðlaun fyrir lægsta skor án forgjafar: 6 mánaðarkort í World Class að andvirði kr. 52.490.
Nándarverðlaun á 3. holu: 15 skiptakort í World Class að andvirði kr. 16.250.
Lengsta dræv á 5 eða 6. holu: 15 skiptakort í World Class að andvirði kr. 16.250.
Karlmenn leika af gulum teigum og konur af rauðum teigum.
Ath forgjöf er deilt í 2.
Einungis þeir sem eru skráðir í viðurkenndan golfklúbb innan vébanda GSÍ geta unnið til verðlauna.
Til að vinna forgjafarverðlaun þarf keppandi að uppfylla skilyrði EGA um gilda forgjöf.
Jafntefli leyst
Verði tveir eða fleiri jafnir í verðlaunasæti í höggleik skal leika bráðabana.
Verði leikmenn jafnir í punktakeppni þá vinnur besta skor (punktar) á seinustu holunni og þaðan talið aftur.
Verði enn jafnt skal varpa hlutkesti.
Sami keppandinn getur ekki unnið til verðlauna í báðum flokkum þ.e. höggleik án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Betra verðlaunasæti gildir í slíku tilfelli. Sé það eins þá gilda verðlaun í höggleik á undan.
Mótanefnd áskilur sér rétti til að fresta mótinu reynist þátttaka ekki næg eða að lágmarki 50 manns. Skráningu líkur föstudaginn 27.september kl.20.00.