
Umsögn
Hola 8/17 Móakot
Par 3 155 metrar
Nokkuð erfið par 3 hola sem hallar upp á við með flöt á tveimur stöllum og nokkrum halla á móti innáhögginu. Flötin er varin með einni glompu vinstra megin fyrir framan flötina og hól hægra megin. Hólar á brautinni mynda skemmtilegt landslag í brautina.
Eins og sagði þá er flötin á tveimur stöllum og hækkunin mikil. Töluverður halli er á flötinni og þó innáhögg sé gott er erfitt pútt eftir. Par er gott skor á þessa holu.