Category: Tilkynning
Wendel nr 2.
Bikarkeppni GVS 2020
Allir nýliðar að mæta!
Úrslit úr REK eru í Golfboxinu.
Munum að vera góð við hvort annað, líka á Golfvellinum!
Bikarkeppni GVS 2020
Þáttökuskilyrði klúbbfélaga GVS
Tilkynning frá Kjörnefnd GVS 2019
Tilkynning frá Kjörnefnd GVS
Til allra félaga í GVS.
Kjörnefnd Golfklúbbs Vatnsleysustrandar (GVS) auglýsir eftir framboðum til stjórnar klúbbsins fyrir aðalfund hans sem verður haldinn mánudaginn 2. Desember 2019 kl. 20:00 í golfskála GVS
Um er að ræða framboð til formanns til eins árs; gjaldkera, formann mótanefndar, formann vallarnefndar og formann forgjafarnefndar til tveggja ára. Þá er kosið um þrjá varamenn í stjórn og tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara, til eins árs.
Þeir sem gefa kost á sér til áframhaldandi setu í núverandi embætti eru:
formaður,
formaður vallarnefndar,
formaður forgjafarnefndar
Frambjóðendur skulu vera félagsmenn í GVS. Framboð þurfa að berast kjörnefnd eigi síðar en föstudaginn 29. Nóvember 2019 kl. 22:00. Framboðum skal skila í tölvupósti á tölvupóstfangið
siggi.hallbjorns@gmail.com
gvsgolf@gmail.com
jon@vogar.is
Kjörnefnd GVS
Sigurður J. Hallbjörnsson
Húbert Ágústsson
Jón Ingi Baldursson
Mánudaginn 2. des ! Aðalfundur GVS 2019
Aðalfundur GVS mánudaginn 2.12.2019
Haldinn í Golfskálanum kl.20:00
Fundur settur.
Kosning fundarstjóra.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar, formaður Hilmar Egill Sveinbjörnsson
2.Skoðaðir reikningar GVS, gjaldkeri Hildur Hafsteinsdóttir
3.Umræður og atkvæðagreiðsla um tillögur skv. 9. grein.
- Lagabreytingar
5.Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
a,Formaður , til eins árs.
- Gjaldkeri til 2 ára
c.Formaður Mótanefndar, til 2 ára
d.formaður Vallarnefndar, til 2 ára
e.Formaður Forgjafarnefndar, til 2 ára
f. 3 varamenn til eins árs..
g.Tveir Skoðunarmenn reikninga. Og einn til vara.
6.Önnur mál.
Stjórn GVS