Búið er að draga út aðalvinninginn í Regluverðinum í ár og sú heppna er Kristjana Þórey Guðmundsdóttir úr Golfklúbbi Vatnsleysustrandar.
Dregið var úr fjölmennum hópi þeirra sem tóku þátt í golfleiknum í sumar. Kristjana Þórey vann sér inn glæsilega sjö daga golfferð fyrir tvo til Fairplay á Spáni í boði Golfsögu.
Þessir snillingar eru að fara að keppa fyrir GVS um helgina í Grindavík. þeim þætti vænt um ef einhverjir félagsmenn sæu sér fært að mæta og hvetja þá áfram, og eða draga fyrir þá kerrurnar.
GVS – Golfklúbbur Vatnsleysustrandar:
Guðbjörn Ólafsson, Jóhann Sigurbergsson, Reynir Ámundason, Helgi Hansson,
Lauk á Kálfatjarnarvelli í dag með sigri Golfklúbbsinns Geysis, Golfklúbbur Siglufjarðar varð í öðru sæti og Golfklúbbur Vatnleysustrandar hafnaði í 3 sæti eftir glæsilegan 3 – 0 sigur á Golfklúbbi Sandgerðis.
Sveit GEY
Bergur Konráðsson, Birgir Már Vigfússon, Edwin Roald, Magnús Bjarnason,
Oddgeir Oddgeirsson og Pálmi Hlöðversson.
Sveit GKS
Jóhann Már Sigurbjörnsson, Salmann Héðinn Árnason, Sævar Örn Kárason,
Finnur Mar Ragnarsson, Kristinn Reyr Sigurðsson, Bjarnþór Erlendsson.
GolfBox hefur þróað nýtt og nútímalegt notendaviðmót fyrir kylfinga sem eru vanir að nota GolfBox. Nýja viðmótið er byggt á nýrri tækni og aðlagast öllum tækjum bæði í langsniðs (landscape) og skammsniðs (portrait) formi. Gert er ráð fyrir því að nýtt notendaviðmót fari í loftið í öllum löndum þriðjudaginn 16. ágúst.
Allar aðgerðir eru þær sömu. Ekki hafa verið þróaðar neinar nýjar. En upplifunin er ný og nútímaleg eins og tæknin að baki breytingunni.
Hin nýja tækni gerir GolfBox auðveldara að bæta við, breyta og aðlaga nýja virkni í framtíðinni.
Þetta nýja notendaviðmót mun að lokum koma algjörlega í stað þess núverandi á flestum notendasvæðum. Skráning á skori mun t.d. nota sömu tækni og er nú þekkt í mótahluta kerfisins.
GolfBox ætlar einnig að bæta rafræn skorkort, þannig að þar verði rafræn undirskrift leikmanns og ritara möguleg. Við staðfestingu rástíma kylfings verður nú boðið upp á þann möguleika á fá rafrænt skorkort í farsíma hans.
Við vonum að notendur GolfBox muni fagna hinu nýja notendaviðmóti.
Munið: Allt er eins og áður, aðeins nútímalegra og gert til að aðlagast öllum tækjum bæði í langsniðs og skammsniðs formi.